Skyrfrómas með ananasbragði

1 stór dós ananassafi eða 3 litlar dósir

500 ml rjómi (þeyttur - frekar minna en meira)

2 dósir Ísey skyr vanilla

10 blöð matarlím

250 g sykur

5 egg

 

Sigtið ananassafann frá ananassneiðunum og setjið til hliðar.

Hitið því næst vatn í stórum potti og setjið annan minni ofan í.

Hellið tæplega helmingnum af ananassafanum út í minni pottinn og bræðið matarlímsblöðin í safanum, eitt í einu og hrærið í á meðan.

Látið kólna aðeins en ekki of mikið því þá harðnar límið aftur.

Hrærið egg og sykur saman þar til blandan er létt og ljós.

Þeytið 500 ml af rjóma (frekar minna en meira) og hrærið því næst skyrinu saman við rjómann með sleif. Næst er þessu bætt út í eggjablönduna ásamt ananassafanum (ekki þessum með matarlíminu) og hrært rólega saman í hrærivélinni.

Í lokin er ananassafanum með matarlíminu bætt við. Passið að matarlímið fari ekki sjóðandi heitt út í, heldur vel volgt. Það má ekki vera farið að stífna.

Hrærið aðeins meira og hellið í skálar.

Setjið inn í ísskáp í um 3-4 klst eða þar til skyrfrómasinn er farinn að stífna.

Súkkulaðidraumur með silkimjúku kremi

Lesa meira