Skyrkaka með hvítu súkkulaði

Botn

1 pk lu bastogne kex
150 g smjör

Aðferð:
Kexið og smjörið er maukað vel saman í matvinnsluvél. Þrýstið kexblöndunni á botninn og upp með börmunum á bökunarforminu. Geymið botninn í kælið á meðan þið útbúið fyllinguna. 



Fylling

250 g vanilluskyr
250 g jarðarberjaskyr
3 dl rjómi
1 msk flórsykur
1 tsk vanilluduft eða paste
100 g hvítt súkkulaði, brætt
Ber og súkkulaði eftir smekk notað til að toppa 

Aðferð:
Léttþeytið rjóma, bætið skyrinu saman við varlega með sleif ásamt vanillu og flórsykri. Bræðið hvítt súkkulaði yfir vatnsbaði og kælið. Blandið súkkulaði varlega saman við skyrblönduna með sleif og bætið rjómanum saman við í lokin.
Setjið skyrblönduna ofan á kexbotninn og kælið í minnsta kosti þrjár klukkustundir eða lengur. Best yfir nótt. Það er hægt að frysta þessa köku.Skreytið kökuna að vild en mér finnst best að sáldra smá hvítu súkkulaði yfir kökuna og nokkrum ferskum berjum.