Smoothie skál með döðlum og hnetusmjöri

Innihald:

200 g vanilluskyr
1 stk banani eða mangó
1 bolli möndlur
4 stk döðlur
1 msk gróft hnetusmjör
½ msk chiafræ eða önnur fræ, t.d. hörfræ
appelsínusafi, magn eftir smekk
klakar

Aðferð: Setjið öll hráefnin í blandara eða matvinnsluvél og maukið, hellið blöndunni í skál og skreytið gjarnan með fersku kívi, chiafræjum og hnetusmjöri

ÍSEY SKYRSKÁL MEÐ ACAI OG SUÐRÆNUM ÁVÖXTUM

Lesa meira