Skyramisú

2 egg
50 g sykur
500 g Ísey skyr með vanillubragði
1 tsk. Vanilla extract eða vanillusykur
4 dl þeyttur rjómi
200 g kökufingur (Lady fingers kex)
6-7 dl sterkt uppáhellt kaffi
Gott kakó, magn eftir smekk
Súkkulaði, smátt saxað

Aðferð

Stífþeytið egg og sykur saman þar til þykk froða myndast.
Blandið skyrinu við eggjablönduna og hrærið vel.
Bætið vanillunni og þeyttum rjómanum varlega saman við með sleif. Leggið blönduna til hliðar í stutta stund á meðan þið hugið að kökunum.

Hellið upp á sterkt kaffi og setjið kaffið í skál.
Veltið kökufingrunum upp úr kaffinu og skiptið þeim niður í desert skálar eða fallega skál.

Setjið helminginn af skyrblöndunni ofan á kökufingurna, stráið svolitlu kakói yfir og smátt söxuðu súkkulaði. Endurtakið leikinn þar til hráefnið er búið.

Í lokin er stráð vel af kakói yfir réttinn.
Það þarf að kæla þennan rétt í lágmark 4 klukkustundir áður en þið berið hann fram, best finnst mér að geyma hann í kæli yfir nótt.
 

Sítrónu skyrkaka með blönduðum berjum

Lesa meira